Það virðist nákvæmlega ekkert hafa breyst á Íslandi eftir heilt bankahrun og hrun samfélagsins. Nú undanfarið hefur ekki vantað auglýsingarnar um bílalán til almennings til þess að hvetja okkur Íslendinga til þess að yngja upp bílaflotann, sem óðum eldist og eldist. Nú er hin besta blómatíð hjá venjulegum bifreiðaverkstæðum og á götum sjást beyglaðir bílar, rispaðir, sumir hreinlega skrölta um og í hverfum seint á kvöldin heyrast drunur í ónýtum hljóðkút sem einhver hefur ekki efni á því að skipta um. Viðgerðir á bílum eru heldure ekki ódýrar þar sem krónan er jafn veik og við hrun og mikil verðbólga þannig að allir innfluttir varahlutir eru verðlagðir eins og gull.
Auglýsingarnar til okkar eru hverri annarri glæsilegri, en Landsbankinn slær þó öll met. Myndskeið af ungri metnaðargjarnri, mjög upptekinni útivinnandi móðir með fjóra drengi sem þarf að skutla hægri vinstri í skóla og tómstundir eins og tíðkast í íslensku samfélagi, á tvo glæsilega bíla á bílaláni frá Landsbankanum og er alsæl með lífið. Bankinn bjargaði henni, algjörlega! Skjáauglýsing frá sama banka hljóðar upp á bílalán með 8,55 % breytilegum vöxtum í 84 mánuði (7.ár). Mjög margt getur gerst á 7 árum eins og við vitum í efnahagsmálum lítillar þjóðar, hvað þá heimsins. Á einni heimasíðu bílaumboðs las ég að upphæðir bílasamnings gætu breyst! Breyst! Það er sem sagt ekkert öruggt hvaða upphæð verið er að skrifa undir!
Ef þetta er nú aðeins sett í samhengi við raunveruleikann þá má ætla að sex manna fjölskylda, því ég ætla að gera ráð fyrir að metnaðargjarna móðirin sé ekki einstæð, þurfi að hafa sig alla við, ef reka á tvo bíla miðað við hve mikið skutl móðurinnar er vegna áhugamála barnanna sem ekki eru heldur ókeypis, hvað þá bensínið komið í 250 kr pr.líter, tryggingarnar, eða tíminn sem í þetta fer frá vinnu. Hér varð allt brjálað þegar bensínlíterinn fór forðum yfir 160 kr en nú segir enginn neitt!
Bílálán eru ekki gefins í dag enda væri fólk eflaust í mun meira mæli að yngja bílaflotann ef svo væri og teldi það mun skárra, en að standa í rándýrum viðgerðum á bílum sínum sem bila eðlilega vegna aldurs!
Bílalán eins og býðst frá fjármálastofnunum í dag eru almennt á 8-9% breytilegum vöxtum í árferði þar sem verðbólga fer vaxtandi (nú 6%) og búist er við að seðlabanki landsins hækki stýrivexti á næstu misserum. Lán með 9 % vöxtum í 6% verðbólgu = 15% og galopið varðandi hækkun vaxta og verðbólgu !!
Þetta hljómar hreinlega ekki skynsamleg fjárfesting og venjulegt fólk hlýtur að stoppa aðeins við áður en það stekkur á glaðninginn.
Hvenær ætla fjármálastofnanir að fara að skilja það, að við venjulegur neytandi viljum vita hvað við erum að fara að borga í þessi 7 ár sem lánið varir. Lánasamningar eiga ekki að vera eins opnir í alla enda eða eins og veðurfræði þar sem puttanum er stungið upp í loft og vonast eftir blíðu, en óveðurskýin hrannast upp. Það er ekki endalaust hægt að setja upp sólgleraugun og segja „brostu, fáðu þér lán og þetta reddast“!
Þegar tekin eru neytendalán á það að liggja kýrskýrt fyrir hvað fólk er að fara að borga og greiðsluáætlun á að vera nákvæm og skýr. Samkvæmt samningalögum 36.gr má ekki halla á neytendur í þessum viðskiptum nú frekar en fyrr, annað er í raun ósanngjarnir samningsskilmálar enda einhliða og fjármálastofnun er sérfræðingurinn í þessum viðskiptum. Hvað er svona erfitt fyrir fjármálastofnanir að horfa sjálfir í skýin sem þeir segjast vera að gera alla daga og átta sig á að þeir sjálfir þurfi að taka áhættuna á því að lána bílalán með föstum óverðtryggðum vöxtum og að greiðslan einfaldlega sé alltaf sú sama allan lánstímann þannig að fólk viti nákvæmlega hvað það er að kvitta undir. Ef fjármálastofnunin misreiknar sig á slíku neytendaláni þá á hún að bera hallann af því, ekki neytandinn. Bílverðið rýrnar eðlilega ár frá ári og því er eðlilegt að lánið rýrni líka, en hækki ekki langt umfram verðgildi veðsins!
Það er endalaust gengið út frá því að íslenskir neytendur séu hin mestu fífl og við höldum áfram að leyfa það!
|
Bensínverð yfir 250 krónur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Vinir og fjölskylda, Bloggar | Facebook



Athugasemdir
Snilldargrein, sammála hverju einasta orði...............
Jóhann Elíasson, 8.2.2012 kl. 09:24
Sæl Vilborg og takk fyrir.
Já bensínið er orðið ansi dýrt. Hryllingur.
En ef vextir á bílalánum á Íslandi eru 8-9 prósent í 6 prósent verðbólgu þá er það samt helmingi lægri vextir en eru á bílalanum á Írlandi sem nú liggja á 12,5% fyrir bílalán til 5 ára (nýr bíll). Verðbólgan á Írlandi er líklega neikvæð. Í Danmörku er verðbólga um það bil 2,5 prósetn og vextir á bílalánum liggja þar á bilinu 10-16 prósent og stundum er krafist veðs í fasteign. Gjörðið svo vel. Svona er að vera með evru og í ESB. Lengi getur vont versnað.
Gunnar Rögnvaldsson, 8.2.2012 kl. 16:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.